Senn líður að lokum búskapar okkar hér í Sverige og mjög líklega þessarar blogg síðu…. Biggi er búinn með lokaverkefnið sem lukkaðist bara rosa vel, ég er búin með verknámið á brunadeildinni sem var mjög lærdómsríkt svo nú er ekkert annað í stöðunni en að flytja heim í alla vitleysuna☺ Við stöndum á haus og pökkum og þrífum og sendum hina og þessa með dót fyrir okkur heim hehe….já það er ekkert lítið sem maður nær að safna á 2 árum☺ Dáldið skrítin tilfinning að vera að fara, eigum eftir að sakna svo margs héðan, þá fyrst og fremst allra frábærru vinanna sem við höfum eignast hérna úti, tunnel-banans, góða veðursins, stigans heima, onsdagspubbanna, silfurskottnanna á klósettinu, H&M, borgarmenningunni og hellings meir….. Svo viljum við þakka öllum hér úti fyrir frábæra samveru og nokkuð ljóst að við höfum eignast fullt af nýjum yndislegum vinum sem við munum halda samband við í framtíðinni.
Þrátt fyrir þetta erum við bara mjög spennt að koma heim, gerum ráð fyrir að vera lent eftir nokkra tíma það er að segja ef okkur verður hleypt í flugvélina með allan farangurinn.
Jæja sjáumst Magney og Biggi
04. október 2008 klukkan 07:59
Birgir og Magney 1 athugasemd
vá það er svo langt síðan ég bloggaði að ég átti bágt með að muna lykilorðið..
En ég hef tvær fréttir að færa. Sú fyrri er að fyrsta draftinu af ritgerðinni hefur verið skilað. Hin fréttin er heldur leiðinlegri, hjólinu mínu var stolið og það harðlæstu. Þetta er 3. hjólið sem ég hef átt yfir ævina og 2. hjólið sem hefur verið stolið. Ég segi bara eins og Indriði: "Ég er alveg að verða brjálaður, alveg". Held ég gangi með 9 járnið á mér hér eftir, ef ég skyldi rekast á kauða, og þá er bara að taka fulla sveiflu. Maður ætti nú að vera í æfingu eftir sumarið.
Annars erum við búin að redda okkur íbúð heima og mér sýnist að kapphlaupið sé hafið. Kosta Boda og fleiri fabrikur teknar með krafti í dag. Ættum að geta boðið eins og 30 manns í mat núna :)
BB
13. september 2008 klukkan 19:48
Birgir og Magney 6 athugasemdir
Já það hefur verið ansi dapurlegt með færslur hér:-(
En það er nú bara merki um að mikið sé að gera. Við erum sem sagt komin aftur út, vorum heima í mánuð í sumar, sem var voða gott:-) Biggi er að vinna á fullu í verkefninu og er svona farinn sjá fyrir endan á því. Ég hins vegar er í smá verknámi á vegum Landspítalans á brunadeildinni á Karolinska, sem er mjög spennandi og frábært tækifæri.
Mamma og Pabbi eru svo að koma til okkar í næstu viku, en sá gamli á stór afmæli, 60 ára kallinn:-) alltaf eins og unglamb:-)
Nú svo er von á litlu krili íheiminn á þriðjudaginn. Gangi þér rosa vel Lísa mín, fylgjumst spennt með og sendum þér góða strauma:-)
Nú annars erum við bara að fara að flytja heim fyrir fullt og allt, bara um mánuður til stefnu, erum búin að vera að skoða íbúðir og líklega búin að finna eina sem við ætlum að leigja næsta árið. Já það er bara nokkuð góð tilfinning að vera að flytja heim:-)
Magney
05. september 2008 klukkan 16:41
Birgir og Magney 2 athugasemdir
Ætla skella inn smá fréttum af okkur hjúum, höfum alveg haft nóg fyrir stafni. Nú Beggi kallin kvaddi okkur og flutti aftur heim á klakann góða. Í tilefni þess fórum við út að borða á ítalskan stað í gamla-bænum. Maður saknar hanns nú pínulítið☺.
Nú annrs hefur veðrið verið að leika við okkur, hitinn hefur verið nær 30 stigum síðustu 2-3 vikurnar. Svo við höfum reynt að nýta það svo gott við getum og skellt okkur meðal annars á ströndina, grilla og borða úti☺.
Á þjóðhátíðardag svía 6.júní kíktum við í bæinn í blíðunni.
Þá helgi var einnig hátíð sem heitir smacka på Stockholm, sem er e-h konar úti hátíð með fullt af tjöldum sem selja ýmisskonar mat.
Sænskir unglingar útskrifast einnig úr menntaskólum og halda upp á það.
Héldum að íslenskir unglingar héldu upp á það almennilega, en svíar virðast toppa það. Útum allt eru keyrandi trukkar með hressum krökkum á pallinum. Spila tónlist og syngja og dansa í takt við það☺
Í gær fórum við svo og kíktum á Svíþjóð keppa við Grikki. Sem var geggjað gaman. En það er settur upp risa skjár úti, svo það var stappað af fólki og svaka stemming. Sérstklega þar sem Svíar unnu☺
Nú annars er það bara vinna hjá okkur☺ svo er pabbi gamali að koma í smá vinnuferð og ætlum við að reyna að hitta á kalinn eins og eina kvöld stund. Setti líka inn 2 ný albúm, ef e-h langar að kíkja☺ Linkarnir eru undir Myndir hér hægra megin.
kveðja Magney
11. júní 2008 klukkan 09:28
Birgir og Magney 2 athugasemdir
Jæja þá er síðast prófið búið, tók reyndar bara eitt en það síðasta í minni skólasögu.. swwweeet Ætla sko að halda upp á það, fá mér bjór og grilla. Er búinn að vera að deyja hér inni í þessum hita við að læra. Komst reyndar að því eftir að ég fór fyrst úr húsi í nokkra daga í dag að það er ekkert skárra úti. Hiti og svitalykt er alveg einstaklega góð blanda með smá prumpufílu, en þetta er það sem maður finnur þegar maður stígur inn í tunnelbanan núna.. Held ég taki fram hjólið og hjóli í vinnuna. Jæja farinn að aðstoða við að grilla... svo er bara 30 stig um helgina... sæll
yfir og út Biggi
04. júní 2008 klukkan 16:47
Birgir og Magney 3 athugasemdir
Sit úti á svölum að drekka morgunkaffið og borða íslenskar heimabakaðar flatkökur...mmm gerist ekki betra☺ tengdaforeldrarnir voru í heimsókn um helgina og komu færandi hendi af íslenkum afurðum. Já svo skemdi veðirið ekki fyrir. Við fórum í heimsókn til gamallar vinkonu Birgis sem býr í skerjagarðinum, var ekker smá gaman, hún er gift sænskum manni og búa í æðislegu húsi við sjóinn, eru með um 50 epplatré í garðinu, svona lítið óðalssetur☺
Við fórum í hjólatúr um Stockhólm Þeir feðgar við Stadshuset. Við hjóluðum um Djurgården og borðuðum þar nesti Við fórum með bát til Drottningarholmen og skoðuðum Slottið og garðinn sem var risa stór og rosa flottur. En annars er þetta bara smá sýnishorn af því sem við gerðum. Búið að vera alveg frábær helgi og þökkum við fyrir okkur:-)
13. maí 2008 klukkan 07:46
Birgir og Magney 2 athugasemdir
Jæja golfvertíðin hafin og allt kapp lagt á golfið núna, sérstaklega áður en Hjalti kemur. Ekki hægt að láta hann taka sig í bakaríið enn eitt sumarið. Enda hef ég ekki miklar áhyggjur af honum þar sem hann er að fara að gifta sig og getur þar með lagt golfsettið á hilluna :) En ég og Beggi a.k.a. Van Wilder erum búnir að fara nokkrum sinnum. Set eina mynd af kjellinum.
Annars eru pabbi og Sigrún í heimsókn og planið sett í siglingu í Drottningholmen, heimsókn og grill í Skerjagarðinum, hjólatúrar og auðvitað rauðvínsdrykkja þar á milli.
Birgir is out
08. maí 2008 klukkan 19:49
Birgir og Magney 1 athugasemd
Löng helgar vinna framundan ohhh vildi að ég ætti frí, en það verður fljótt að líða eins og hverjir aðrir dagar hérna í Stockholmi. Það er óhætt að segja að sumarið er farið að láta á sér kræla, reyndar spáð rigningu í dag og á morgun, en það er allt í lagi því ég er að vinna☺ En fyrir hvað tveimur helgum kíktum við í Kungsträdgården með Helga Pál sem kom í heimsókn til okkar, Begga, Sigrúnu, Erling og littlu skottunum þeirra tveimur Brynhildi og Hólmfríði.
Kirsuberja trén í blóma☺
Það er ekki leiðinlegt að vera hér í góðu veðri☺ Fengum okkur í gogginn á Fridays. Síðustu helgi var svo aðalfundur námsmannafélagsins, þar sem kosin var ný stjórn og Biggi lét af störfum ritara. Mjög skemmtilegt kvöld☺ Valborgsmässoafton var á miðvikud. og hittumst við heima hjá Sigrúnu og Erling í grill partý. Grilluðum lambalæri og banana, sem smakkaðist príðis vel. Átti svo frí í gær og skellti mér í smá göngutúr: Næstu helgi er síðan von á pabba hans Bigga og Sigrúnu. Svo e-h skemmtilegt verður gert þá. En annars bið ég að heilsa Magney
02. maí 2008 klukkan 09:02
Birgir og Magney 2 athugasemdir
Já þá er búið að skipta yfir í sumartíð hér í Stockholmi og við orðin 2 tímum á undan ykkur heima. Veðrið er líka aðeins farið að gefa til kynna að það sé farið að styttast í sumarið. Svo lundin er aðeins farin að léttast og hugurinn fainn fram úr tímanum og maður farinn að leifa sér að hugsa um sól og góða daga☺ Ég er allavegana búin að hengja út á snúru og sit með kaffi bolla út á svölum.....
Síðustu helgi vorum við með góðann gest hjá okkur. Lísa mágkona kom í heimsókn og áttum við rosa kósý og góða helgi. Röltum um bæinn, kíktum á kaffihús, veitingarhús og jú auðvitað búðir með sprite og kaffi pásum☺. Svo á Thelma Rán afmæli í dag og viljum við óska henni til lukku með afmælis daginn sinn☺
Annars er bara fínt að frétta, Biggi er byrjaður að vinna á fullu í lokaverkefninu og ég bara að vinna og ætla að hætta þar 1. Júlí. Svo er óráðið hvað við gerum eftir það, en við erum farin að hugsa smá heim☺
Jæja ætla njóta þess að vera í fríi, á líka von á símtali frá góðri vinkonu☺ kveðja Magney
11. apríl 2008 klukkan 10:08
Birgir og Magney 2 athugasemdir
Ég verð bara að segja ykkur frá læknisferðinni sem ég fór í dag. Er búinn að vera með einhverja drullu í hálsinum síðan ég fór heim og er ég alveg á þeirri meiningu að flensu er dreift um Icelandair flugvélarnar því ég verð alltaf veikur þegar ég fer heim.. En nóg um það, ég ákvað því að fara til læknis hér þar sem þetta virðist ekkert vera að fara, þótt mér sé mjög illa við að fara til læknis (sorry Fríða).. en svona er þetta bara og sprautur.. hvaða geðsjúklingur fann upp á þær. Og það er eins og læknar æsist við að hræða mann aðeins með því að halda sprautunni á lofti og sprauta aðeins úr henni. Fyrir mér gætu þeir alveg eins haft hjólsögina og öxina hangandi upp á vegg. En svo ég víki aftur að sögunni þá panta ég tíma, sem heitir víst akut tími, eins og ég sé í einhverri lífshættu. Ég mæti á svæðið og fæ tíma hjá henni Lenu... var nokkuð sáttur því þetta hljómar mjög saklaust nafn, allavegana skárra en Dr. Abu Bakr. Þegar ég kem svo inn til hennar þá sé ég að hún er með snusdollu á borðinu og svo kem ég nær og tek eftir því að hún er með snus í vörinni. Hvernig getur maður tekið lækni alvarlega sem er með snus í vörinni og þegar hún spurði hvað væri nú sem amaði að mér þá langaði mig að spurja hvað væri nú að henni og hvort hún hafi ekkert lært í læknisfræði. En hún komst að því að lokum að ég væri með vírus og losaði svo snusið í ruslatunnuna.
hälsningar, Biggi
01. apríl 2008 klukkan 10:38
Birgir og Magney 3 athugasemdir