....já við skelltum okkur í óvænta páskaferð heim til íslands, nú allt gaman líður fljótt og ég er komin aftur út en Biggi verður aðeins lengur. Sú óvænta heimsókn heppnaðist ekki alveg sem skildi, en hún var þannig að Fríða var sú eina sem vissi um okkur og sótti okkur út á völl, ekkert smá dugleg að þaga yfir þessu í heila viku☺ aðeins 15 mín. í að við mundum gera fyrsta fólki bilt við var hringt í þau og sagt að taskan hennar Magneyjar hafi orðið eftir út á Keflavíkur flugvelli, djö var búin að bíða spennt eftir að sjá svipinn á mömmu. Við sem sé tókum vitlausa tösku (eða réttara sagt Biggi tók vitlausa tösku☺). En okkur tókst að sjá skemmtilegan svip á Lísu þegar við Birtumst skyndilega í krónunni, það var dálítið skemmtilegt og nokkrir til viðbótar, mjög gaman. Erum búin að eiga skemmtilegan tíma með fjölsk. og vinum, aldeilis dekrað við mann☺
Annars þá er ég að fara að mæta í vinnu á morgun og á að taka á móti 2.árs hjúkrunarnema sem ég verð með í verknámi næstu vikurnar. Er líka að læra undir próf, þar sem ég er bún að vera í smá kúrs með vinnunni, sár og sárameðferð, mjög skemmtilegur kúrs.
Jæja ætla að fara að gæða mér að páska egginu mínu en málshátturinn í ár var: Alla brestur eitthvað..
Bestu kveðjur
Magney.
23. mars 2008 klukkan 13:37
Birgir og Magney 4 athugasemdir
Það eru tvær ástæður fyrir því að við erum búin að vera svona löt að blogga. Önnur er að við vorum að fá okkur digital kapal með rúmlega 200 stöðvum. Ég skráði mig úr KTH daginn eftir og Beggi þykist ætla að flytja inn eftir að hann sá að það er ein stöð sem sýnir golf 24/7. Hin ástæðan er að við vorum með heimsókn um helgina, engir aðrir en stórfiskarnir úr GRV. Ég þakka þeim kærlega fyrir komuna, algjörir höfðingjar og þetta fer klárlega á topp 3 listann yfir bestu heimsóknirnar.. ekkert ofmat þar ;)
Hápunktar helgarinnar voru að sjálfsögðu Smahsing Pumpkins tónleikarnir (sem voru stórlega vanmetnir af Hinna), Nína í lestinni sem fékk misjafnar undirtektir og svo þegar MR rollurnar mættu eins klæddar á djammið :)
Annars er próflestur í gangi og svo förum við að boða komu okkar á klakann fljótlega
Það leikur ansi sterkur grunur að mér að það séu ekki mjög margir aðrir en Danni að skoða þessa heimasíðu, enda við ekki verið mjög dugleg að blogga undanfarið. Svo vil ég nú meina að bloggarinn sigli í undanhaldi og nýjungar eins og Facebook muni taka við. Þekki nú nokkra hunda sem eiga enn eftir að fá sér svoleiðis.
En ég ætla þó að skrifa nokkur orð um gang mála hér í Svíþjóð. Síðustu helgi fórum við í sumarbústað í Skerjagarðinum með námsmannafélaginu. Skemmtum okkur konunglega, létum okkur meira segja ekki muna um að stökkva í sjóinn. Á morgun er svo Þorrablót Íslendinga hér þannig að það er alltaf eitthvað um að vera.
Skólinn rúllar og núna er ég að leita mér að lokaverkefni. Hefur gengið hægt en er með ýmisslegt í pokahorninu og þetta fer vonandi að komast á hreint svo maður nái að klára í sumar.
Er svo ekki klassískt að ræða veðrið svona undir lokin. Veturinn er búinn að vera vægast sagt undarlegur. Einn hlýjasti vetur sem Svíar hafa upplifað. Venjulega er fastur snjór í 3 mánuði, en núna hefur varla sést snjór. Sýnist golfstraumurinn vera að snúast eitthvað, tyvärr fyrir þá sem búa á Íslandi.
kv,
Birjir (ísl:Birgir)
16. febrúar 2008 klukkan 00:09
Birgir og Magney 6 athugasemdir
Letin er að drepa mann um þessar mundir þannig að ég læt bara myndirnar tala sínu máli. En það má segja að handboltinn hafi minnst setið eftir í þessari handboltaferð heldur snilldar félagsskapur Linkur á myndirnar eru hérna til hægri.
mvh,
Birgir
03. febrúar 2008 klukkan 14:24
Birgir og Magney 5 athugasemdir
Jæja þá er maður kominn heim til sín ef svo má segja, betri-helmingurinn er reyndar ekki kominn sökum vinnusemi en von er á honum 16.jan.
Stockholmur tók á móti mér grár og blautur, þó var það bara nokkuð góð tilfinning að sitja í tunnelbananum á leiðinni heim eftir yndislegjól og áramót í faðimi fjölskyldu og vina heima á Íslandi. Litla krúttlega íbúðin okkar beið eftir mér, þó pínu tómlegsem verður þó ekki lengi þar sem mamma, Guðbjörg og Magga frænka eru væntanlegar til mín á miðvikudaginn
Framundan er vinna og skóli,þó er aldrei að vita hvað maður tekur sér fyrir hendur.
Er að hugsa um að geyma að taka upp úr töskunum þangað til á morgun og fara að kíkja í sjónvarpið og undirbúa mig fyrir vinnuna á morgun
Hafið það gott allir saman og eigið gott kvöld
Magney
07. janúar 2008 klukkan 20:00
Birgir og Magney 9 athugasemdir
Já það má segja að það hafi verið fallegur dagur á mánudaginn.. prófin voru kláruð með stæl og svo bauð Magney mér út að borða þar sem að kallinn varð einu árinu eldir á mánudaginn. Bara 4 ár í endalokin, er ekki allt downhill eftir 30 árin :) Svo kíktum við á jólamarkaðinn í gamla bænum þar sem við náðum að versla síðustu jólagjafirnar.. Gerði reyndar þau mistök að byrja á að kaupa mér 500pc pókersett sem er þyngra en ansdskotinn og þurfti að burðast með þetta um bæinn. Er kominn með upphandleggsvöðva á við frænda hans Danna núna.
Að lokum ætlum við hjúin að óska ykkur kæru vinir gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári... einhver ykkar eiga nú eftir að fá sænsk heimagerð jólakort... lagði mikla vinnu í þetta ;)
Jólakveðja
Biggi og Magney
19. desember 2007 klukkan 10:06
Birgir og Magney 5 athugasemdir
líður að kveldi. Fórum í þrusu skemmtilegt kveðjupartý hjá Guðbjörgu í gær og kíktum svo á eftir aðeins í bæinn en stoppuðum nú stutt við í bænum enda fengum við nánast hvergi að fara inn. Ef þið haldið að íslenskir dyraverðir séu pirrandi þá toppar ekkert þá sænsku.
Í kvöld verður bara rólegheit en svo á morgun er jólaglögg námsmannafélagsins og ætlum við að bjóða upp á hangikjöt og julmust.. mmm..
Á þriðjudaginn er svo síðustu verkefnaskilin og enn ein kynningin og þá getur maður farið að einbeita sér að prófunum. Fimmtudagin er svo lúsíukaffi hjá Evu og Philip, vona að maður komist en annars bið ég Magney bara að stinga nokkrum lúsiubollum í vasann fyrir mig ;)
Já það má segja að það sé stíf dagrskráin en maður tekur bara hvíldina út um jólin og lætur famelíuna stjana við sig :)
Einar slæmar fréttir að lokum, ipodinn minn er að deyja. Held ég geti ekki lifað án hans. Hann er algjörlega ómissandi í tunnelnum yfir Sudoku-inu. Ótrúlegt hvað maður getur verið háður svona litlu tæki, fer yfirleitt hvergi nema að hafa hann með mér.. vona bara að hann endist greyið fram að jólum og að einhver góður gefi mér nýjan í jólagjöf :)
Ciao
Birgir Þór
08. desember 2007 klukkan 20:11
Birgir og Magney 9 athugasemdir
Sit og horfi á dráttinn fyrir EM 2008 í fótbolta.. finnst alveg aaagalegt að Englendingar komust ekki á EM. Samt sáttur með að Svíarnir komust og loksins hefur maður einhverjar taugar til liðs í keppninni. Það væri náttlega snilld að skella sér bara til Austurríkis á leik en hef heyrt að það sé þrautinni þyngri að næla sér í miða. En maður fær allavegana að sjá eitthvað EM á næsta ári en ég, Ari, Helgi, Beggi og tveir félagar hans ætlum að skella okkur til Þrándheims á EM í handbolta, komnir með íbúð í miðbæ Þrándheims þannig að þetta stefnir í hörku stuð.
Á föstudaginn tók ég annað lokaprófið á þessari önn og gekk bara nokkuð vel.. því var nú ekkert sérstaklega fangað um helgina heldur tókum við því bara rólega. Versluðum reyndar eitt og annað fyrir jólin og var hápunkturinn þegar afgreiðslumaðurinn í Levis búðinni reyndi að troða mér í þrengstu buxurnar í búðinni. Alveg ótrúlegt með þessa Svía og fataval þeirra. Ég var að leita af bara venjulegum Levis buxum en hann sagði alltaf að þetta væri alltof vítt og svo sagðist hann vera með ákkurat sniðið fyrir mig.. ég þurfti fokking vaselín til að komast í þær. Svo styttist í að við komum á klakann en áætluð koma okkar er 21.des ef flugmiðarnir eru réttir :)
Sæl að sinni
ps. Danni snjórinn er farinn ;)
02. desember 2007 klukkan 11:38
Birgir og Magney 3 athugasemdir
Maður kemst alltaf í svo skemmtilega jóla stemmningu hér þegar það snjóar, snjórinn fíkur ekki bara í burtu heldur situr kjur þar sem hann lendir. Langar helst bara að fara að setja upp jólaskrautið, á nefninlega smá skraut síðan í fyrra þar sem ég og Guðbjörg föndruðum smá fyrir jólin og núna eru nokkrar búnar að bætast í hópinn og ætlum við að hittast á fimmtudaginn og föndra. Ætlum að vera heima hjá Evu og hafa það kósý,híhíhí, ekki amarlegt þaðJAnnars er það svo sem ekkert skrítið að ég sé svona spent fyrir jólin, þar sem það er í blóðinu að byrja að undirbúa jólin snemma. Já bara frá því ég man eftir mér þá hefur mamma vakað fram á nætur þegar jólin nálgast, að bauka e-hog svo vöknuð á undum öllum öðrum. Stundum heldur maður að hún hafi hreinlega ekki farið að sofa þar sem hún situr enn við eldhús borðiðJ
En annars á ég frí í dag, búin að vera að vinna alla helgina. Svo erum við farin að bíða spent eftir komu tengdó og Elínu vinkonu hennarJ En þær ætla að heimsækja okkur yfir helgina ásamt þeim búðum sem finnast hérnaJ ætlum svo að hafa það svaka gott á kaffihúsum og öðrum skemmtilegum stöðum þess á milliJ
13. nóvember 2007 klukkan 12:06
Birgir og Magney 5 athugasemdir
Tá er ég búinn ad fara nethringinn 2-svar og klárlega bara kominn tími á ad blogga. Sit nidri í skóla og er ad bída eftir tíma svo er bara eintóm verkefni framundan um helgina, reyndar er Magney ad vinna í kvöld tannig ad ég og Beggi aetlum ad taka okkar mánadarlega grínkvöld. Sídast horfdum vid á stand-up med Jamie Foxx sem kom skemmtilega á óvart, í kvöld kemur Trigger Happy eda fóstbraedur sterklega til greina. Á morgun er okkur svo bodid í korridor partý med öllum althjódanemunum úr bekknum mínum en ég held ad vid tökum tví rólega og skellum okkur í bíó eda ad ég hjálpi Magney ad sauma jóladúkin svo hún verdi búin fyrir jólin 2010 En sídustu helgi fórum vid til mottulandsins Lettland... Tad er haegt ad lýsa teirri ferd í nokkrum ordum: bjór-karaoke-bjór-Phillipus Bragi-sjórida-bjór-og ónefndur madur sem talar meira í svefni en í vöku... s.s. fínasta ferd í alla stadi Eitt ad lokum, tad vildu allir meina ad tvífari minn hafi verid um bord, ég var nú ekki sammála, hvad finnst ykkur???