Kósýheit par exelans
Já áttum hér aldeilis góða kósý helgiJ
Skrítið samt hvernig maður fær svona smá tómleika tilfinningu þegar mikið er búið að vera að gera og margir í kringum mann, líf og fjör og svo allt í einu allir farnir……
Fengum til okkar góða gesti mömmu hans Bigga, ömmu og litlu frænku. Amma hans Bigga var 80 ára og lét sér sko ekki muna um að skreppa til Stockhólms á afmælisdaginnJ
Hér var ýmislegt brallað, kíkt í búðir, borðað góðan mat, skálað í baileys á kvöldin, setið á kaffihúsum og haft það ofsalega gott. Söknuðum bara Fríðu þar sem hún komst ekki með sökum anna í skólanum, læknisfræðinemar fá víst ekkert frí en hún kemur bara seinna og þá verður gert e-h skemmtilegt.
En hjartans þakkir fyrir komuna, ekkert smá gaman að fá ykkur til okkar hérna útJ
Í dag eftir að þær fóru heim fórum við Biggi og keyptum okkur miða á Damien Rice sem verður í mars ætlum að reyna mæta að þessu sinni, ekki sitja uppi með 3 ónotað miða eins og á Sufjan Stevens……..fórum síðan heim að taka til fyrir næstu gesti, mömmu og pabba sem koma á morgun. Svo tómleika tilfinningin varir vonandi ekki lengiJ
P.s. setti inn fullt af myndum J
Puss puss
Magney
Tíminn líður hratt...
Það er alveg ótrúlegt hvað tíminn líður hratt, helgin ný búin og næsta rétt ókomin. Signý og Hinni voru hjá okkur síðustu helgiJ Stockholm tók nú kannski ekkert sérlega vel á móti þeim þar sem snjóaði og var alveg skít kallt. Þrátt fyrir það áttum við alveg æðislega skemmtilega helgi. Versluðum soldið í H&M á föstudaginn en já ég gleymdi að segja að á fimmdudagskvöldinu elduðu strákarnir alveg dýrindis Elg steik fyrir okkur hehehe var það ekki annarsJ
Föstudagskvöldið átti Signy afmæli og við ákváðum að taka eldamennskuna að okkur þetta kvöldið. Síðan var fengið sér rauðvín, ópal, spjallað, smá sungið og kvörtun frá konunni á neðstuhæðinniJ Vorum náttlega frekar seint á ferðinni en fórum á mjög skemmtilegan stað sem heitir Blue moon bar. Þar dönsuðum við stelpurnar alveg stanslaust í marga tíma, sjaldan skemmt mér svona vel á dansgólfinu…… Laugardagskvöldið var farið fínt út að borða fengið sér humar og steik, rosalega gott.
Þar sem óveður var heima á íslandi á sunnudeginum voru þau veðurteppt og komust ekki í flug fyrr en seint um nóttina. En Hinni og Signý, takk æðislega fyrir heimsóknina gaman að fá ykkurJ
Merkilegt hvernig hlutirnir geta dottið upp í hendurnar á manni þegar maður á svona eiginlega síst von á þeim. Ég var eiginlega alveg búin að gefa vinnuleitina upp á bátinn þar til eftir jól. En ég var svo allt í einu boðuð í vinnuviðtal, og fór í dag. Jú jú það var svona alveg smá stress. En ég fór og gerði mitt besta og talaði mína fínu sænskuJ Ég hafði sótt um sjúkraliða stöðu en þau höfðu eiginlega meiri áhuga á að ráða mig í hjúkku stöðu svo ég er bara ánægð með það. En ég klára fyrst sænskukúrsinn sem ég er í og hef svo samband við þau aftur eftir svona 2 vikur og hitti þau þá. Verð þá vonandi orðin smá betir í sænskunniJ og vonandi fæ ég vinnuna……
Svo fer að styttast í að mamma, amma og systir hans Bigga og auðvitað litla snúllan hún Thelma komi í heimsókn til okkar. En þær koma 15 nov. það verður ekkert smá gaman að fá þær, gerum sko e-h kósý og skemmtilegt. Amma hans Bigga á afmæli, gaman að fá alla í heimsókn á afmælisdaginn. Já hún lætur sko ekki stöðva sig í að skreppa í smá heimsókn til StochólmsJ
20 nov. koma svo mamma og pabbi. En mamma verður 60 ára 25 nov. Ásamt erfitt með að trúa því þar sem hún lítur alls ekki út fyrir að vera 60 ára, kannski 50. Svo ætla ég að skreppa með þeim í nokkra daga til Dannmerkur og kíkja í heimsókn til Láru. Það verður rosa gaman.
Verið góð við hvort annað
Magney