Það er svo ljúft að eiga helgarfríJ og ég tala nú ekki um þegar það er 3 daga helgarfrí. Við erum að hugsa um að plana að fara á skauta um helgina, það eru samt engir venjulegir skautar. En það er þannig að yfirmaður minn stundar þessa íþrótt mikið yfir vetrar tíman og kom mér inn á þetta og prentaði út fullt af upplýsingum um hvar hægt sé að leigja og fara á skautana. En þetta eru svona sérstakir langir skautar sem settir eru undir skó og skautað á sjónum þar sem hann leggur. Sýndi mér líka fullt af myndum, ekkert smá flottJ
Alveg spegilsléttur sjórinn þegar hann er frosinnJ
Þeim sem langar að koma með okkur endilega hafa samband……því fleiri því skemmtilegra
Jebb annars var síðasta helgi mjög fín þrátt fyrir að ég var að vinna og ballið með Páli Óskari var mjög skemmtilegt en stutt….
Já svo er það komið á hreint að við förum heim í sumar, þann 15.júní ég verð að vinna á A-4 og Biggi upp í Hönnun. Jú get ekki neitað því að mér sé farið að hlakka til að koma heim og fara að vinna þar. Og hitta fjölskyldu og vini maður saknar þeirra alltaf…
Svo er líka fyrirhuguð Ítalíu ferð í byrjun júní, fengum mjög ódýra miða héðan frá Stockholmi. Svo það er fullt spennandi á dagskránni.
Svo styttist óðum í að mín yndislega (tilvonandi) teingdamóðir og mágkona komi í heimsókn. Þær koma 21.feb. Það verður rosa gaman að fá þær og e-h skemmtilegt brallaðJ
Smellti svo nokkrum myndum inn.
Knús héðan frá Stockholmi
Magney
16. febrúar 2007 klukkan 10:43
Birgir og Magney 7 athugasemdir
Ég vil byrja á því að þakka Helga og Danna fyrir frábæra helgi, það er alltaf gaman að fá góða vini í heimsókn :) En það var greinilegt að helgin sat eitthvað í manni á mánudagsmorgni því eins og vanalega þá er bandý seinnipartinn á mánudögum og fer ég yfirleitt þangað á morgnana í leiðinni í tíma til að henda töskunni og bandýkylfunni inn í skáp svo ég þurfi ekki að burðast með þetta allan daginn. Ég var nú ekki meira vakandi en það að ég henti töskunni inn í skáp og læsti svo næsta skáp við hliðiná… svo fór ég bara í tíma og kom ekkert aftur fyrr en um 5 leytið þegar bandýtíminn átti að byrja. Þá kom í ljós að ég hafði læst öll fötin hjá einhverjum gaur inni í skáp með mínum lás.. ætli hann hafi ekki rétt skroppið í sturtu og komið svo til baka og séð að það var búið að læsa allt dótið hans inni og enginn lykill. Þegar ég kom svo var búið að klippa í sundur lásinn og búið að setja nýjan lás á minn skáp..vandræðalegt eða bara fyndið???
13. febrúar 2007 klukkan 21:12
Birgir og Magney 6 athugasemdir
Hæ og hó. Verð að segja ykkur frá einu skemmtilegu atviki sem ég lenti í um daginn. Þennan tiltekna dag lá leið mín í försäkringskassan (sem er eins og tja VR, Sjóvá, LÍN og bæjarskrifstofur allt í einni stofnun) að sækja um húsaleigubætur. Þegar ég kem inn stendur einn maður í röðinni á undan mér, mjög líklega Indverji. Hann réttir konunni í afgreiðslunni eitthvað plagg, sennilega að sækja um sænska kennitölu eða eitthvað álíka. Konan spyr hann hvort hann sé með einhver skilríki eða passa. Maðurinn stendur hljóðalaus og horfir bara á konuna svo hún endurtekur sig frekar pirruð en var ekkert að reyna að segja þetta á ensku fyrir manninn því greyið skyldi greinilega ekkert í sænsku. Svo loksins þegar greyið náði þessu þá sagði hann bara nej. Það var greinilega ekki svarið sem afgreiðslukonan vildi heyri því hún ausaði svo orðunum yfir hann að það lá við að hann færi grátandi út og þvílíkt sem ég vorkenndi honum því maður þekkir það nú alveg að vera útlendingur.
Mér leist nú ekkert á þetta enda næstur í röðinni og ekki að nenna láta svona innflytjendahatara æsa sig yfir mig. En galvaskur fór ég og sagði henni að ég hefði sótt um húsaleigubætur og væri að koma með restina af gögnunum sem vantaði. Þá sé ég allt í einu koma stórt bros á konuna, fyrsta sem ég hugsaði var; hvað sagði ég vitlaust núna.. en þá spyr hún mig hvort ég sé frá Írlandi. Nej sagði ég från Island. Hún fer alveg í kleinu og segir já ég ætlaði að segja það og lætur þar við sitja og fer svo bara að kópera gögnin mín. Þegar hún kemur aftur þá spyr ég hana hvort hún þekki einhvern frá íslandi eða… Hún ljómaði öll og sagði að henni hafi einhvern veginn grunað það og séð það á nafninu mínu og að Ísland væri svo fallegt og að hún ætlaði sko pottþétt að ferðast þangað einn daginn. Næsta sem ég veit þá er hún farin að spyrja mig um Ísland, hvað ég væri að gera hér, hvað ég verði hér lengi og hvað ég talaði góða sænsku…and so on and so on…
Þegar ég var kominn út þá trúði ég því bara ekki að þetta væri sama manneskjan og sú sem hellti sér yfir greyið Indverjann, því hún var alveg þvílíkt almennileg við mig.
En það má læra eitt af þess…. Það borgar sig að koma frá Ísland Jmúhohohoho
Kveðja frá salmonellu landinu..
BB
06. febrúar 2007 klukkan 13:47
Birgir og Magney Engin athugasemd
Jú það er hægt að segja að maður er farinn að svitna aðeins yfir náminu núna, búinn 1/3 af þessari periodu og maður varla farinn að kíkja í bók og prófin bara í næsta mánuði, allamalla… en þeir eru nokkuð áhugaverðir kúrsarnir sem ég er í á þessari periodu, Behavioural management control, Design and product realisation og svo framhaldskúrs í Project Management þar sem er kennt hvernig á að stjórna mörgum verkefnum í einu. Á næstu periodu sem byrjar svo í lok mars tek ég Financial mathematics og Strategic management. Allir kúrsarnir eru á sænsku nema Behavioural management þar sem má finna allra þjóða kvikindi. Ég er með tveimur frökkum og tveimur ítölum í hópverkefni í þeim kúrs og það verður eflaust mjög áhugavert… held frakkarnir séu ekki enn búnir að fyrirgefa mér þegar ég sagði þeim að frakkar gætu ekki neitt í handbolta eftir að við unnum þá með 8 mörkum. Ég held þó að ítalarnir séu reyndar blóðheitari enda finnst mér þeir alltaf vera að rífast eitthvað.. en þeir eru víst flestir með ansi stuttan kveikiþráð þarna við miðjarðarhafið… bíddu ætli Danni sé nokkuð ættaður þaðan JEn það verður allavegana spennandi í næstu viku því ég er búinn að plata þá með okkur í fótbolta á fimmtudögum… Helgi frí væri örugglega nagli við hliðiná ítölunum ;) (vona að hann lesi ekki bloggið mitt)
Planið yfir helgina er að reyna bulla eitthvað í verkefninu sem ég er að gera ásamt tveimur svíum í verkefnastjórnun. Eigum að gera verkefnahandbók fyrir Sony Ericsson… vúhú. Svo er reyndar búið að biðja okkur um að elda annað læri á morgun… held að Daði treysti sér ekki í þetta.. hehe. Enda erfitt að toppa lærið hjá Magney um daginn.
Ps. Svo óska ég öllum til hamingju með afmælið sem eiga/áttu afmæli nýlega eða á næstu dögum. Helgi P. Jóndi, Doddi ófeigs (einhverra hluta vegna man ég hans afmæli alltaf en annarra virðist ómögulegt að muna, sérstaklega þeir sem eiga afmæli í sep,okt eða nóv), Sigrún og svo að sjálfsögðu litli uppáhalds frændi hann Hákon Reyr. Vona að ég sé ekki að gleyma neinum…
That´s all folks
02. febrúar 2007 klukkan 23:39
Birgir og Magney 1 athugasemd