04október
Tímamót
Senn líður að lokum búskapar okkar hér í Sverige og mjög líklega þessarar blogg síðu….Biggi er búinn með lokaverkefnið sem lukkaðist bara rosa vel, ég er búin með verknámið á brunadeildinni sem var mjög lærdómsríkt svo nú er ekkert annað í stöðunni en að flytja heim í alla vitleysuna☺
Við stöndum á haus og pökkum og þrífum og sendum hina og þessa með dót fyrir okkur heim hehe….já það er ekkert lítið sem maður nær að safna á 2 árum☺
Dáldið skrítin tilfinning að vera að fara, eigum eftir að sakna svo margs héðan, þá fyrst og fremst allra frábærru vinanna sem við höfum eignast hérna úti, tunnel-banans, góða veðursins, stigans heima, onsdagspubbanna, silfurskottnanna á klósettinu, H&M, borgarmenningunni og hellings meir….. Svo viljum við þakka öllum hér úti fyrir frábæra samveru og nokkuð ljóst að við höfum eignast fullt af nýjum yndislegum vinum sem við munum halda samband við í framtíðinni.
Þrátt fyrir þetta erum við bara mjög spennt að koma heim, gerum ráð fyrir að vera lent eftir nokkra tíma það er að segja ef okkur verður hleypt í flugvélina með allan farangurinn.
Jæja sjáumst
Magney og Biggi